Stuðningspúði fyrir þig og þína
 
 
 
 





bara 1

bara 1 er einskonar ,,björgunarhringur” sem þægilegt er að hvíla framhandleggina á og einnig nýtist hann vel við prjónaskap, tölvuvinnu, lestur og fleira.

Einnig er hægt að láta bara 1 stuðningspúðann styðja við mjóbakið þegar setið er í djúpum stól eða sófa. Góður stuðningur hjálpar til við að halda eðlilegri sveigju í mjóbakinu og kemur í veg fyrir að viðkomandi sitji boginn í svokallaðri rækjustöðu.

bara stuðningspúðarnir eru hannaðir fyrir unga sem aldna, fatlaða jafnt og ófatlaða.

Stuðningspúðarnir eru til í þremur gerðum:
bara 1
, bara 2, bara 3.

Panta

Ég hef notað bara púðana, (bara 1 og bara 2  í um það bil
eitt ár. Guðrún K. Hafsteinsdóttir iðjuþjálfinn minn kom
með þá til mín til prufu. Síðan hef ég ekki sleppt þeim. Þeir
auka ótrúlega mikið á hvíld og þægindi og hjálpa í mörgum
tilvikum upp á verki, sem ég myndi finna miklu meira fyrir,
nyti ég ekki stuðnings þeirra. Einnig kom gleðilega á óvart
hversu fjölbreytilega notkun má af þeim hafa, við útaflegur, uppisetur, á ferðalögum og margt fleira. Þessir púðar
hafa bjargað miklu fyrir mig.
Ylfa Carlsson, gigtarsjúklingur.

Í nóvember 2004 slasaðist ég ílla á úlnlið. Ég var í járnspelkum
sjö vikur og varð fljótt þreytt í hendinni auk þess sem ég
þurfti að hafa mikið fyrir að finna þægilega stöðu handar.
Ég hafði frétt af púðunum hennar Bjargeyjar og fékk tvo
misstóra púða. Þann minni tók ég með mér út um allt en
þann stærri notaði ég meira sem bakstuðning (og geri enn). Eftir reynslu mína af bara púðunum get ég hiklaust mælt með þeim.
Linda Björg Pétursdóttir
 
Smelltu á myndirnar:
© 2005 :: ee.is