...Íslensk hönnun...... íslensk framleiðsla ...... Veljum íslenskt 
bara stuðningspúðinn hefur verið lengi í þróun og mikið lagt í gæði, notagildi og fallegt útlit svo að hann verði notendum bæði til gagns og gleði. bara stuðningspúðinn er léttur og auðvelt að bera hann með sér.
Sérstaða bara stuðningspúðans liggur í lögun hans og innihaldi sem er laufléttar plastperlur sem veita þéttan stuðning og rýrna lítið við notkun.
Hægt er að stilla þéttleika bara stuðningspúðans með því að strekkja teygju í púðaörmunum og einnig má taka úr eða bæta við fyllinguna í gegnum rennilás á fóðrinu.
Ytra byrði bara stuðningspúðans er úr mjög sterku teflonhúðuðu áklæðisefni sem auðvelt er að strjúka af óhreinindi. Einnig má þvo það í þvottavél á 40°C með mildu og klórfríu þvottaefni.
Bæði notendur og heilbrigðisstarfsfólk hefur lýst yfir ánægju með virkni, efnisval og útlit bara stuðningspúðanna.
Áfram verður unnið að þróun bara stuðningspúða.
|