Stuðningspúði fyrir þig og þína
 
 
 
 

Hönnuður bara stuðningspúðanna er Bjargey Ingólfsdóttir iðjuþjálfi. Hún lauk námi við Ergoterapihögskolen í Þrándheimi Noregi 1984. Í starfi sínu  með fötluðum og öldruðum hefur hún séð mikla þörf fyrir bætta set- og vinnuaðstöðu sem varð hvatinn að þróun stuðningspúðanna.

Hún leggur áherslu á að við hlúum vel að okkar dýrmætustu verkfærum, höndunum, og gætum vel að setstöðunni bæði í hvíld og vinnu til að fyrirbyggja verki og aðra vanlíðan.

Bjargey hefur lagt áherslu á notagildi og fallegt útlit stuðningspúðanna sem minna á form ávaxta.
Hún hefur hönnunarvernd á bara stuðningspúðunum og einnig er vörumerkið bara hennar eign.

Bjargey hefur sótt ýmis myndlistarnámskeið og átt verk á sýningum bæði hérlendis og erlendis. Hlutir eftir hana eru meðal annars til sölu í Listasafni Íslands, Gullsmíðagalleríinu Húnoghún, Jólahúsinu, Jólagarðinum og Bardúsu á Hvammstanga. Sjá bara vörur.

 
 
© 2005 :: ee.is