Stuðningspúði fyrir þig og þína
 
 
 
 
Það er mikilvægt að styrkja stoðkerfið með reglulegri hreyfingu því mannslíkaminn er ekki hannaður fyrir langar setur. Samt sitja margir við vinnu sína allan daginn og svo er komið að talað er um homo kyrrseticus í þessu sambandi.

Í setstöðu er vogarafl efri hluta líkamans mikið. Um það bil helmingur líkamsþungans er fyrir ofan mitti og til að létta á þunganum skekkjum við okkur iðulega. Afleiðingarnar eru verkir og stífir vöðvar í herðum og baki.

bara
stuðningspúðinn veitir góðan stuðning undir framhandleggi og hendur og eykur þægindi og möguleika sitjandi fólks til að stunda iðju sína. Vel hannað vinnuumhverfi og rétt líkamsbeiting (ergonomi) við vinnu stuðlar að meiri vellíðan og starfsorku.

bara stuðningspúða er ætlað að:

Bæta setstöðu . Góður stuðningur undir olnboga og framhandleggi hjálpar til við að halda bakinu beinu.

Minnka og/eða fyrirbyggja verki í herðum, handleggjum og höndum. Með því að hvíla handleggina á bara stuðningspúða er hægt að slaka vel á og koma í veg fyrir vöðvaspennu og verki sem henni fylgja.

Gera fólki kleift að stunda vinnu/iðju á auðveldari og þægilegri hátt.

 
 
© 2005 :: ee.is